Það er málfrelsi hérna...

Það eru mannréttindi að fá að koma og tala um hvað sem er og hlusta á hvað sem er.

Málfrelsi eru mannréttindi


mbl.is Sorglegt að fá svona mann til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki alveg á grensunni?

Hvernig má það vera, að tapa dómsmáli en segja þá upp leigunni nema fallið sé frá kröfunni og samt hækkar leigan umtalsvert?


mbl.is „Erum svolítið í lausu lofti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður hún lokuð um aldir

Það ætti að loka fyrir köfun eða snork um alla framtíð.

Og fjarlægja öll mannvirki sem þarna er. 

Þetta er ólánsstaður!


mbl.is Silfru hefur verið lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útskot!

Vegaverkfræðingum hefur gleymst að hanna útskotin sem voru svo víða meðan vegirnir voru möl og grjót. Þá var hægt að skoða landið án mikillar áhættu.

Núna sýnist mér það vera hættulegt ef bíllinn bilar eða springur dekk. Hvað þá að vilja horfa á útsýnið en ekki bara veginn framundann. Eins gott að vera á ferðinni í björtu.

Ég hef lengi saknað þessara útskota.


mbl.is „Býður upp á hörmuleg slys“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arðgreiðslur og skattlagning þeirra??

Ég vil láta skattleggja arðgreiðslur fyrirtækja eins og venjulegar launatekjur.

Það er orðið of algengt að þeir sem eru með einhvern rekstur borgi sér bara einhver mánaðarlaun, en svo eru arðgreiðslur himinháar.

Hvernig eru þær skattlagðar?


Það er engin lausn á vandamálinu

Það er engin lausn á þessu vandmáli að færa það til annarra landa Evrópu.

Það eiga öll lönd Sameinuðu þjóðanna að hjálpa þessu fólki þar sem það er í Grikklandi. Byggja upp flóttamannabúðir með góðum íbúðium skólum heilsugæslu og öllu sem þarf.

Svo þegar stríðið tekur enda, því það hlítur að gera það á endanum þá flytur mestmegnis af fólkinu heim aftur og hjálpar til að byggja landið sitt úr rústum

Ef það eru einhverjir sem alls ekki vilja dvelja þarna eftir að þar er komin öll þjónusta og mataraðstoð, þá á að vera hægt að taka á móti umsóknum um flutning til landa sem óska/vilja taka við flóttamönnum. Og það eru mörg lönd sem vilja það.

En hjápin þarf að berast til þessa flóttamanna strax og til þeirra þar sem þau eru núna.

Oft áður hefur verið varpað niður mat og lyfjum til flóttamanna af minna tilefni.

Hvað er að ykkur eiginlega!!!


mbl.is „Ungbörn missa meðvitund“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndarmál....

Einu sinni gat hún sofið vært...

Svo fór yngsta barnið að sofa í hans holu, það var huggun

en þar kom, að nóttin varð ein andvökustund

allt til hann kom heim

Undir morgun

En svo fór hún að læðast ut á nóttunni

keyra um sveitina og hinar sveitirnar.

ein í heiminum sem ekki sást á daginn.

allt örðuvísi og forvitnilegt.

Fann hun það sem hún leitaði að? Hún fann hann en var hætt að leita.

Hann var farinn

 


Það eru að koma kosningar :)

Nú er lag allir þið sem hafa verið hlunnfarnir

Það er að nálgast kosningar og þá er rækilega gefið í.


mbl.is Stuðningur við tónlistarnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn um Gráa herinn

Ég heyrði í gær að á hverjum degi þetta árið bættust 10 einstaklingar við Gráa herinn. Það þykir mér gott. Vonandi sér þetta fólk "ljósið" í að krefjast þess sem er sjálfsagt en þeir sem ráða hafa ekki fundið leiðir til að framkvæma þetta.

Við  erum engir bótaþegar. við eigum innistæður í lífeyrissjóðum hvert hjá sínu verkalýðsfélagi og svo eigum við innistæðu hjá TR sem við höfum borgað til frá 16 ára aldri.

Við erum á eftirlaunum. Sum nauðug en aðrir þreyttir eftir langa daga við erfiðisvinnu.

Við borgum skatta af þessum eftirlaunum. Líka af eftirlaunum frá lífeyrissjóðum. Reyndar er ég þar með tvísköttuð. Mitt framlaga í lífeyrissjóð var að mestu borgað þar inn fyrir 1995 og þá var borgaður skattur af þeirri upphæð.

Tvísköttun er ólögleg. Hvert snýr maður sér?

Ekki til ríkisstjórnar sem finnst þetta smámál.

Þar með finnst mér að þessi ríkisstjórn þurfi að fara frá hið fyrsta. Ef þau sinna ekki hag þegnanna allra, þá eiga þau ekkert erindi á Alþingi sem er Alþingi allra Íslendinga


Grái herinn

Fundur Gráa hersins er 9 apríl 2016 laughing Heldur fátt er að frétta hjá mér af fundinum. Hann var eins og ég bjóst við. 

Svo ég renndi uppá Skaga og í Grósku búðina og byrgði mig upp af gæðamold og fallegum plöntum. 

Nú get ég ekki stækkað svalirnar meira og þá get ég bara bætt stofunni við svalirnar. Hún er hvort sem er ekkert notuð og er björt og falleg og vel fær um að láta hinum yndislegustu stofublómum líða vel og fyrir utan gluggana vonast ég eftir vínberjaklösum og fíkjum, ef mér auðnast að eignast fíkjutré


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigrún Jóna

Höfundur

Sigrún Jóna Sigurðardóttir
Sigrún Jóna Sigurðardóttir

Eldri borgari

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • DSC00111
  • 4 Mý
  • 2 um miðnætti í júní
  • 2 Mývatn
  • 1959236 236010736594339 6186102454235321810 n

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband